Jump to 0 top | 1 navigation | 2 content | 3 extra information (sidebar) | 4 footer | 5 toolbar


Content

Það sem drifið hefur á daga mína

Já það er alltof langt síðan ég bloggaði, ég veit!

 En nú fer þetta vonandi að batna eitthvað. Vinnutörnin er búin og lífið að komast aftur í samt stand. Það er nú skemmtilegt að segja frá því að á 16 dögun náði ég að vinna 81,5 yfirvinnutíma:) nokkuð gott, ha?! 

Eins og flestir sem þekkja mig ættu að vita þá er ég búin að vera að drukkna í vinnu við að opna nýja Intersportverslun í Lindunum í Kópavogi. Búðin opnaði loks á Fimmtudaginn og það var alveg svakalegt húllumhæ alla helgina. Við fórum langt fram úr öllum okkar markmiðum og bara gætum ekki verið glaðari með þetta allt saman:) Eða stolltari, erum alveg að rifna úr stolti. Að minnsta kosti ég:)

Við Bryndís(hin skrautan) vorum svo heppnar að fá tvær útstillinga-stelpur frá Intersport í Svíþjóð okkur til halds og trausts. Þær fóru nú mis vel í liðið þarna. Stóðu fastar á sínum reglum og svona. En það veitti sko ekki af að vera fjórar í þessu. Þetta fór allt saman frekar hægt af stað en undir lokin vannst þetta rosalega vel og við náðum að vera komin heim um 20:30 daginn fyrir opnun. En planið var að vinna alla þá nótt.

 

Sunna Dís systir átti afmæli fjórum dögum fyrir opnun(25 mai) en ég náði þó að skjóta að henni smá pakka. Til hamingju með afmælið Sunna Dís!!! Ég átti svo afmæli daginn eftir(26 mai) og hvað haldiði að hann Tótinn minn hafi gert!? hann fann númerið hjá yfirmanni mínum, hringdi í hann og fékk að stela mér í hádegismat! hann er nú alveg...yndislegur! Við fórum í Turninn og borðuðum yndislegan hádegismat og Andrés fósr smá skoðunartúr með okkur. Þetta var alveg æðislegur dagur:) Tóti þú ert bestastur!!! Þórður bróðir átti svo afmæli deginum fyrir opnunardag(28 mai) og varð þá tvítugur. Til hamingju með afmælið Þórður!!!

Ég fékk svo loksins helgarfrí. Fríið fór aðallega í að hjóla og örlitla hvíld. Steina stjúpa átti svo afmæli á Sunnudaginn(1 júní) og við systkinin og tengdabörn gáfum henni gjafabréf í heilnudd. Til hamingju með afmælið Steinunn!!! 

Nóg af afmæliskveðjum...

 

...Kalli bróðir missti tengdapabba sinn um helgina, allt of ungan. Mig langar að votta þeim Evu, Kalla og fjölskyldu samúð mína. Ég veit að Eva var algjör pabbastelpa og Kalla þótti mjög vænt um hann...

 

 

Ég fór svo að hitta Gogga í skúrnum hjá Ása í gær. Þessi elska bauðst nefnilega til þess að hækka hjólið mitt. Ég var mætt rétt um 18:00 og ekki farin fyrr en rúmlega 23:00. Við komumst einmitt af því að neðsti punkturinn í hjólinu er olíutapinn!! Hversu ósniðugt er það eiginlega!?! Það er ekkert smá gaman að hlusta á þá vini, Gogga og Ása þegar þeir byrja að pæla, spjalla og spökulera um hjólin. Þeir stilltu það alveg eftir mér og minni henntusemi, og sendu mig prufutúr eftir prufutúr eftir prufutúr. Hjólið er allt annað sko. Mikið mýkra og skemmtilega. Þeir komust nú reyndar af því að ég er eins og...alltof létt! Mér skillst að hjólið eigi að dúa um 18mm þegar maður leggs fram á það, en hjá mér...8mm! :) Og þá var það í botni takk fyrir. Þeir alveg velltust úr hlátri yfir þessu, aldrei séð þetta áður! hahaha... Ég reyndi að svindla með því að setja skólatösku á bakið á mér, en mér var bannað að svindla:S  Annars...þessir strákar eru náttla bara besstir sko! Að hanga yfir einhverju mótorhjóli og kellingunni sem á það í tæpa 5 tíma, og þeir voru sko alveg til í að vera lengur, og fá ekkert borgað fyrir það... Þetta gera bara gullmolar! Takk strákar mínir!!! 

 

Þá er nóg komið í þetta skiptið, vona að einhver hafi nennet að lesa þetta:)

Óver and Át 

  • No ratings
  • No ratings
  • No ratings
  • No ratings
  • No ratings
  • 0 ratings

Leave a comment


Already have a login?