Jump to 0 top | 1 navigation | 2 content | 3 extra information (sidebar) | 4 footer | 5 toolbar


Content

Takk fyrir mig

Úff hvað ég er södd marr!

Ég losnaði fyrr úr vinnunni í dag svo ég hafði loksins tíma til þess að fara í Bónus og Krónuna og versla mér í matinn. Og þar sem ég hafði kvöldið alveg autt þá ákvað ég að elda þennan líka rosalega góða mat, enda ekki búin að lifa á öðru en Dominos, American style og Nings síðustu daga. Tóti var aðstoðarkokkur, sá um að taka úr ofninum og fylgjast aðeins með kjötinu...hann kann þetta sko alveg kallinn!

Nú tekur við smá sjónvarpsgláp og svo svefninn sem mér veitir sko ekki af núna...*geisp*

 

Annars var gærdagurinn líka alveg æðislegur. Hörður(bossinn) sleppti okkur snemma heim, enda sunnudagur og löng vinnutörn frammundan. Ég auðvitað brunaði heim í snögga sturtu og svo beint út að hjóla! Lét greyið Bjartmar bíða alltof lengi eftir mér:S sorrý Bjartmar! Hemmi hitti svo á okkur og ekki leið að löngu þar til Nóri bættist í hópinn. Við gerðum heiðarlega tilraun til þess að draga mömmu með út að hjóla, grínuðumst aðeins með það að það væri kannski ekki ráð því það færi pottþétt að rigna. Mamma var hinsvegar ekki heima þegar við komum, en viti menn...við vorum ekki búin að standa nema nokkrar mínútur í forstofunni hjá henni þegar byrjaði að dropa...Gat verið, ha!?!

Við kíktum svo í stutt kaffi til önnu og renndum svo niður á torg þar sem við hittum helling af liði. Meðal annars Gogga og frú, og Eddu sem er föst í spelku en lætur það sko ekki stoppa sig. Skellir bara svörtum ruslapoka yfir fótinn og teipar saman.

 

Annars gef ég honum Bjartmari mínum og hans hjóli kredit fyrir getu sko. Og frábær skemmtiatriði. Fyrir þá sem ekki vita, þá er Bjartmar á hippa og við hin öll á racerum. Það var alveg æðislegt að sjá hann leggjast fram á tankinn á hevíjj reisi og hvað þá þegar hann reyndi að prjóna...hahaha!!!  BTW. Getiði bara hvað!?!? Ég prjónaði!!! veijj veijjveijj!! *Geggjað montin sko!* Það var alveg mega skondið að sjá svipinn á Nóra sem leit akkúrat við þegar ég var á afturdekkinu, svo snökkt aftur og bara "Valdís?!? að prjóna!?!"  haha... Nú veit ég að mamma verður alveg æf en svona til þess að koma fyrir algert brjálæði, þá var þetta bara alveg óvart sko:) Munurinn á Hondunni og Kawanum er svo rosalegur. Á meðan Hondan bara steinliggur þá fer Kawinn í prjón. Annars hugsa ég nú að ég fari ekkert að leggja þetta fyrir mig, enda langt langt þangað til ég verð búin að læra almennilega á þetta apparat.

En Takk fyrir gærdaginn strákar mínir:* kysskyss:* 

 

...segjum þetta gott í bili...

 

Óver and át! 

  • No ratings
  • No ratings
  • No ratings
  • No ratings
  • No ratings
  • 0 ratings

7 comments

1. Gutti (anonymous), May 20, 2008 8:00:32 AM #

öss ... Gaggý ökuníðingur :D ...

ég er alltaf að bíða eftir að fá að sjá gripinn þú kanski leifir mér að skoða þegar þú ert búinn á þessari vinnu törn ...

2. Natti (anonymous), May 20, 2008 12:52:48 PM #

ertu að prjóna? össs...
þú ert nú alveg sko

3. Gaggý (anonymous), May 20, 2008 11:02:56 PM #

haha...já ég er nú alveg Jónatan minn:) Verst að það var alveg óvart, hitt hefði verið miklu meira töff sko:)

Og Gutti...auðvitað færðu að kíkja á hann þegar þessi törn er búin. Það stittist í það, bara 9 dagar:) vonandi...

4. Natti (anonymous), May 21, 2008 12:37:04 PM #

Var alveg óvart að þú varst á háum snúning í einum gír og ákvaðst að skipta niður ? :P
Pfff....
:P
hehe oks þá :)
Ég er bara abbó því ég er ömurlegur í þessu.

5. Moms (anonymous), May 27, 2008 12:29:28 PM #

ERNA VALDÍS!!!!!!
Ertu gengin af göflunum??!!

Prjóna????!!!! OG bloggar svo um það??!!
Var það sérstaklega til að fá skammir eða?!

Ég nagaði eldhúsborðið hálft þegar ég sá þetta stelpa!
Natti, komdu vitinu fyrir litla fíflið mitt...pls!

6. Moms (anonymous), May 27, 2008 12:31:35 PM #

Til hamingju með afmælið þitt elsku sætasta og bestasta stelpan okkar!

Þið sem lesið þetta þá var það í gær sko!

Elskum þig í tætlur!

M&M, S-in og H-in. :*

Leave a comment


Already have a login?