Jæjja, þá á að reyna að byrja að blogga eitthvað...
Annars er alveg óttalega lítið að gerast hjá manni þessa dagana. Maður bara vinnur frá morgni til kvölds og fer svo heim í háttinn. Skellir sér kannski í stutta sturtu svona fyrir svefninn.
Við í Intersport erum semsé að hamast við að standsetja nýja búð í Lindunum, sem á að opna núna hvað og hvenar. Við mætum kl 8 á morgnana og vinnum til 22 á kvöldin, svona til þess að byrja með. Svo er planið að vinna lengur svona rétt fyrir opnun, jafnvel taka með sér svefnpoka, kodda, tannbursta og annað slíkt svo maður þurfi nú ekki að fara heim á milli vakta:) Við erum jafnvel farin að ræða um að færa lögheimilið okkar þarna upp í Skógarlind. Þetta er alveg hreint heljarinnar djobb og mikið ævintýri, og maður er alveg hættur að taka eftir sandinum í hárinu og steypunni í fötunum. Ég get nú ekki kvartað yfir miklu. Loksins farin að vinna við það sem ég elska að gera. Svo er fólkið sem ég vinn með alveg æðislegt og það er ekkert smá sem við skemmtum okkur í vinnunni. Svo er þessi búð auðvitað ekkert smáræði sko!!! Þið verðið að koma og kíkja þegar við opnum!?!
Svo er Tóti að undirbúa sig fyrir bóklega (hjóla)prófið núna. Hann fann einhvern link inni á síðunni hans Stefáns Óla sem vísaði honum á próf á netinu og hann er alveg að gera mig geðveika sko. Ég auðvitað man nú ekki mjög mikið síðan ég tók prófið og hann þarf auðvitað að vera að prófa mig í leiðinni. Mér finnst þetta svo ekki skemmtilegt skal ég segja ykkur.
...Ég held ég segi þetta gott í þetta skiptið og fari að leggja mig hjá sæta kærastanum mínum:)...
Óver and át!

1 comment
1. The other moms (anonymous), May 18, 2008 4:41:13 AM #
Mikið er nú gaman að lesa þig hjartagullið mitt, og fá aðeins að fylgjast með þér! Krús á þig!