Jump to 0 top | 1 navigation | 2 content | 3 extra information (sidebar) | 4 footer | 5 toolbar


Content

Það sem drifið hefur á daga mína

Já það er alltof langt síðan ég bloggaði, ég veit!

 En nú fer þetta vonandi að batna eitthvað. Vinnutörnin er búin og lífið að komast aftur í samt stand. Það er nú skemmtilegt að segja frá því að á 16 dögun náði ég að vinna 81,5 yfirvinnutíma:) nokkuð gott, ha?! 

Eins og flestir sem þekkja mig ættu að vita þá er ég búin að vera að drukkna í vinnu við að opna nýja Intersportverslun í Lindunum í Kópavogi. Búðin opnaði loks á Fimmtudaginn og það var alveg svakalegt húllumhæ alla helgina. Við fórum langt fram úr öllum okkar markmiðum og bara gætum ekki verið glaðari með þetta allt saman:) Eða stolltari, erum alveg að rifna úr stolti. Að minnsta kosti ég:)

Við Bryndís(hin skrautan) vorum svo heppnar að fá tvær útstillinga-stelpur frá Intersport í Svíþjóð okkur til halds og trausts. Þær fóru nú mis vel í liðið þarna. Stóðu fastar á sínum reglum og svona. En það veitti sko ekki af að vera fjórar í þessu. Þetta fór allt saman frekar hægt af stað en undir lokin vannst þetta rosalega vel og við náðum að vera komin heim um 20:30 daginn fyrir opnun. En planið var að vinna alla þá nótt.

 

Sunna Dís systir átti afmæli fjórum dögum fyrir opnun(25 mai) en ég náði þó að skjóta að henni smá pakka. Til hamingju með afmælið Sunna Dís!!! Ég átti svo afmæli daginn eftir(26 mai) og hvað haldiði að hann Tótinn minn hafi gert!? hann fann númerið hjá yfirmanni mínum, hringdi í hann og fékk að stela mér í hádegismat! hann er nú alveg...yndislegur! Við fórum í Turninn og borðuðum yndislegan hádegismat og Andrés fósr smá skoðunartúr með okkur. Þetta var alveg æðislegur dagur:) Tóti þú ert bestastur!!! Þórður bróðir átti svo afmæli deginum fyrir opnunardag(28 mai) og varð þá tvítugur. Til hamingju með afmælið Þórður!!!

Ég fékk svo loksins helgarfrí. Fríið fór aðallega í að hjóla og örlitla hvíld. Steina stjúpa átti svo afmæli á Sunnudaginn(1 júní) og við systkinin og tengdabörn gáfum henni gjafabréf í heilnudd. Til hamingju með afmælið Steinunn!!! 

Nóg af afmæliskveðjum...

 

...Kalli bróðir missti tengdapabba sinn um helgina, allt of ungan. Mig langar að votta þeim Evu, Kalla og fjölskyldu samúð mína. Ég veit að Eva var algjör pabbastelpa og Kalla þótti mjög vænt um hann...

 

 

Ég fór svo að hitta Gogga í skúrnum hjá Ása í gær. Þessi elska bauðst nefnilega til þess að hækka hjólið mitt. Ég var mætt rétt um 18:00 og ekki farin fyrr en rúmlega 23:00. Við komumst einmitt af því að neðsti punkturinn í hjólinu er olíutapinn!! Hversu ósniðugt er það eiginlega!?! Það er ekkert smá gaman að hlusta á þá vini, Gogga og Ása þegar þeir byrja að pæla, spjalla og spökulera um hjólin. Þeir stilltu það alveg eftir mér og minni henntusemi, og sendu mig prufutúr eftir prufutúr eftir prufutúr. Hjólið er allt annað sko. Mikið mýkra og skemmtilega. Þeir komust nú reyndar af því að ég er eins og...alltof létt! Mér skillst að hjólið eigi að dúa um 18mm þegar maður leggs fram á það, en hjá mér...8mm! :) Og þá var það í botni takk fyrir. Þeir alveg velltust úr hlátri yfir þessu, aldrei séð þetta áður! hahaha... Ég reyndi að svindla með því að setja skólatösku á bakið á mér, en mér var bannað að svindla:S  Annars...þessir strákar eru náttla bara besstir sko! Að hanga yfir einhverju mótorhjóli og kellingunni sem á það í tæpa 5 tíma, og þeir voru sko alveg til í að vera lengur, og fá ekkert borgað fyrir það... Þetta gera bara gullmolar! Takk strákar mínir!!! 

 

Þá er nóg komið í þetta skiptið, vona að einhver hafi nennet að lesa þetta:)

Óver and Át 

  • No ratings
  • No ratings
  • No ratings
  • No ratings
  • No ratings
  • 0 ratings

Takk fyrir mig

Úff hvað ég er södd marr!

Ég losnaði fyrr úr vinnunni í dag svo ég hafði loksins tíma til þess að fara í Bónus og Krónuna og versla mér í matinn. Og þar sem ég hafði kvöldið alveg autt þá ákvað ég að elda þennan líka rosalega góða mat, enda ekki búin að lifa á öðru en Dominos, American style og Nings síðustu daga. Tóti var aðstoðarkokkur, sá um að taka úr ofninum og fylgjast aðeins með kjötinu...hann kann þetta sko alveg kallinn!

Nú tekur við smá sjónvarpsgláp og svo svefninn sem mér veitir sko ekki af núna...*geisp*

 

Annars var gærdagurinn líka alveg æðislegur. Hörður(bossinn) sleppti okkur snemma heim, enda sunnudagur og löng vinnutörn frammundan. Ég auðvitað brunaði heim í snögga sturtu og svo beint út að hjóla! Lét greyið Bjartmar bíða alltof lengi eftir mér:S sorrý Bjartmar! Hemmi hitti svo á okkur og ekki leið að löngu þar til Nóri bættist í hópinn. Við gerðum heiðarlega tilraun til þess að draga mömmu með út að hjóla, grínuðumst aðeins með það að það væri kannski ekki ráð því það færi pottþétt að rigna. Mamma var hinsvegar ekki heima þegar við komum, en viti menn...við vorum ekki búin að standa nema nokkrar mínútur í forstofunni hjá henni þegar byrjaði að dropa...Gat verið, ha!?!

Við kíktum svo í stutt kaffi til önnu og renndum svo niður á torg þar sem við hittum helling af liði. Meðal annars Gogga og frú, og Eddu sem er föst í spelku en lætur það sko ekki stoppa sig. Skellir bara svörtum ruslapoka yfir fótinn og teipar saman.

 

Annars gef ég honum Bjartmari mínum og hans hjóli kredit fyrir getu sko. Og frábær skemmtiatriði. Fyrir þá sem ekki vita, þá er Bjartmar á hippa og við hin öll á racerum. Það var alveg æðislegt að sjá hann leggjast fram á tankinn á hevíjj reisi og hvað þá þegar hann reyndi að prjóna...hahaha!!!  BTW. Getiði bara hvað!?!? Ég prjónaði!!! veijj veijjveijj!! *Geggjað montin sko!* Það var alveg mega skondið að sjá svipinn á Nóra sem leit akkúrat við þegar ég var á afturdekkinu, svo snökkt aftur og bara "Valdís?!? að prjóna!?!"  haha... Nú veit ég að mamma verður alveg æf en svona til þess að koma fyrir algert brjálæði, þá var þetta bara alveg óvart sko:) Munurinn á Hondunni og Kawanum er svo rosalegur. Á meðan Hondan bara steinliggur þá fer Kawinn í prjón. Annars hugsa ég nú að ég fari ekkert að leggja þetta fyrir mig, enda langt langt þangað til ég verð búin að læra almennilega á þetta apparat.

En Takk fyrir gærdaginn strákar mínir:* kysskyss:* 

 

...segjum þetta gott í bili...

 

Óver and át! 

  • No ratings
  • No ratings
  • No ratings
  • No ratings
  • No ratings
  • 0 ratings

Lögheimilisflutningar

Jæjja, þá á að reyna að byrja að blogga eitthvað...

 

Annars er alveg óttalega lítið að gerast hjá manni þessa dagana. Maður bara vinnur frá morgni til kvölds og fer svo heim í háttinn. Skellir sér kannski í stutta sturtu svona fyrir svefninn.

Við í Intersport erum semsé að hamast við að standsetja nýja búð í Lindunum, sem á að opna núna hvað og hvenar. Við mætum kl 8 á morgnana og vinnum til 22 á kvöldin, svona til þess að byrja með. Svo er planið að vinna lengur svona rétt fyrir opnun, jafnvel taka með sér svefnpoka, kodda, tannbursta og annað slíkt svo maður þurfi nú ekki að fara heim á milli vakta:) Við erum jafnvel farin að ræða um að færa lögheimilið okkar þarna upp í Skógarlind. Þetta er alveg hreint heljarinnar djobb og mikið ævintýri, og maður er alveg hættur að taka eftir sandinum í hárinu og steypunni í fötunum.  Ég get nú ekki kvartað yfir miklu. Loksins farin að vinna við það sem ég elska að gera. Svo er fólkið sem ég vinn með alveg æðislegt og það er ekkert smá sem við skemmtum okkur í vinnunni. Svo er þessi búð auðvitað ekkert smáræði sko!!! Þið verðið að koma og kíkja þegar við opnum!?!

 

 

Svo er Tóti að undirbúa sig fyrir bóklega (hjóla)prófið núna. Hann fann einhvern link inni á síðunni hans Stefáns Óla sem vísaði honum á próf á netinu og hann er alveg að gera mig geðveika sko. Ég auðvitað man nú ekki mjög mikið síðan ég tók prófið og hann þarf auðvitað að vera að prófa mig í leiðinni. Mér finnst þetta svo ekki skemmtilegt skal ég segja ykkur.

 

...Ég held ég segi þetta gott í þetta skiptið og fari að leggja mig hjá sæta kærastanum mínum:)...

 

Óver and át!

  • No ratings
  • No ratings
  • No ratings
  • No ratings
  • No ratings
  • 0 ratings

My first blooooooog

Halló halló

Þetta mun vera nýja blog-ið mitt, eftir áskorun frá mömmu!

Ég lofaði þó engu með endingu né blog-fjölda per mánuð (eða jafnvel ár).

Anywho, farin að elda handa Tóta (ekki gerir hann það sjálfur).

 

Kv. EValdís 

  • No ratings
  • No ratings
  • No ratings
  • No ratings
  • No ratings
  • 0 ratings
Pages: 1 (1 - 4 / 4)